Dagskrá þjóðgarðsins Snæfellsjökuls

Á laugardaginn 7. júní verður 4. áfangi göngunnar með endilangri strönd þjóðgarðsins sem hófst síðasta sumar farinn. Gengið verður frá Þórðarkletti að Skálasnagavita og verða Tómas Gunnarsson fuglafræðingur og Sæmundur Kristjánsson leiðsögumenn um fuglalíf, sögu og náttúru svæðisins.
Gangan tekur um 4-5 klst. og er fólki bent á að vera í góðum skóm og taka með sér nesti. Mæting er við afleggjarann út á Öndverðarnes kl. 10:45. Sunnudaginn júní kl. 11:00 verður refaskoðunarferð við Malarrif undir Leiðsögn Sæmundar Kristjánssonar. Jafnvel er búist við að "kunnuglegir" refir láti sjá sig þar.
Myndin er af Sæfellsjökli í júní 2006. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
5. júní 2008
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Dagskrá þjóðgarðsins Snæfellsjökuls“, Náttúran.is: 5. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/05/dagskra-thjoogarosins-snaefellsjokuls/ [Skoðað:22. febrúar 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.