Endurmennt LbhÍ og Vottunarstofuna Tún ehf. standa fyrir námskeiði í lífrænni sauðfjárrætk en námskeiðið verður haldið þ. 1. apríl nk. kl. 12:45-17:00 (5 kennslustundir) og er haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ, Dölum. Umsjón: Ásdís Helga Bjarnadóttir

Námskeiðið er ætlað þeim sem stunda sauðfjárrækt í meira eða minna mæli og hafa áhuga á að kynna sér möguleika sína á upptöku lífrænna aðferða og á markaðssetningu lífrænna sauðfjárafurða.

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti lífrænnar aðlögunar, einkum fóðurframleiðslu, aðbúnað og heilbrigði sauðfjárins. Fjallað verður um vandamál sem tengjast húsakosti, beitarstjórnun, heyöflun og sjúkdómum, og gerð grein fyrir fenginni reynslu bænda og dýralækna af lausn þeirra með náttúrulegum, fyrirbyggjandi aðferðum.

Þá verður fjallað um skýrsluhald, eftirlit og vottun lífrænnar sauðfjárræktar, og aðra þætti sem huga þarf að við markaðssetningu lífrænna afurða.

Verð: 14.000 kr. Innifalið eru námskeiðsgögn, kaffi og meðlæti. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 4000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590.  Kvittun með skýringu send á endurmenntun@lbhi.is. Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5033/ 433 5000.

Ljósmynd: Kindur í réttum, ljósm. Guðrún Tryggvdóttir.

Birt:
24. mars 2011
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífræn aðlögun sauðfjárræktar - námskeið“, Náttúran.is: 24. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2011/03/24/lifraen-adlogun-saudfjarraektar-namskeid/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: