Málstofa um álag á vatnshlot
Umhverfisstofnun heldur málstofu um álag á vatnshlot 6. mars næstkomandi á Grand Hótel, kl. 9:00 til 15:00. Vatnshlot er afmörkuð heild vatns af umtalsverðri stærð. Vatnið í Mþtvatni er til dæmis eitt vatnshlot.
Málstofan er liður í undirbúningi á vinnu við innleiðingu vatnatilskipunar Evrópusambandsins. Meginmarkmið tilskipunarinnar er að setja ramma um vernd yfirborðsvatns, grunnvatns, árósavatns og strandsjávar, hindra frekari rþrnun vatnsgæða og bæta ástand vistkerfa. Vatnatilskipunin á að tryggja sjálfbæra vatnsnotkun með verndun nytjavatns, bæta gæði vatna og koma í veg fyrir hnignun vatns, t.d. með því að dregið verði úr losun hættulegra efna í vatn. Tilskipunin á einnig að stuðla að aðgerðum gegn flóðum til þess að bæta ástand vatns og sjávar.
Tekið er við skráningum á málstofuna á netfangið ust@ust.is til 5. mars n.k.
Tilgangur málstofunnar:
Erindi á málstofunni flytja fulltrúar frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Náttúrustofu Vestfjarða, Matvælastofnun og Íslenskum orkurannsóknum.
Umhverfisstofnun hóf undirbúning innleiðingarinnar á síðasta ári og hélt ráðstefnu um vatnatilskipunina 31. október s.l. Ráðstefnan var tvískipt og fjallaði fyrri hluti hennar um stjórnsýslu og lífríki en í seinni hluta var fjallað um aðkomu almennings og annarra stofnana að innleiðingu vatnatilskipunarinnar. Ekki var fjallað um álag á vötn á ráðstefnunni en ákveðið að halda málstofu síðar sem eingöngu fjallaði um álag á vatnshlot. Nokkur verkefni voru skilgreind í kjölfar ráðstefnunnar. og Stofnaður var stýrihópur,sem í eiga sæti forstjórar fimm ríkisstofnana – Umhverfisstofnun, Veiðimálastofnun, Orkustofnun, Veðurstofa Íslands og Hafrannsóknarstofnunin. Jafnframt voru skilgreindir fimm vinnuhópar með afmarkað hlutverk vegna ákveðinna verkefna:
- um gagnaskil í sameiginlegan gagnagrunn ESB (WISE)
- um skilgreiningu vatnshlota
- um vistkerfisflokkun
- um manngerð og mikið breytt vatnshlot
- um álag á vatnshlot
Hóparnir hafa þegar hafið störf. Nánari upplýsingar um vinnuhópana og hlutverk þeirra verða sett á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Nánari upplýsingar um málstofuna veita Heiðrún Guðmundsdóttir (heidrun [hjá] ust.is) og Kristján Geirsson (kristjan@ust.is).
Mynd: Daníel Tryggvi og hundurinn Lotta við Mývatn. Ljósmynd:Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Málstofa um álag á vatnshlot“, Náttúran.is: 3. mars 2009 URL: http://nature.is/d/2009/03/02/malstofa-um-alag-vatnshlot/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. mars 2009
breytt: 3. mars 2009