Friðargöngur
Íslenskir friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu.
Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og níunda röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar.
Í lok göngu verður efnt til fundar á Ingólfstorgi þar sem Birna Þórðardóttir framkvændastjóri Menningarfylgdar Birnu flytur ávarp en fundarstjóri er Lárus Páll Birgisson sjúkraliði.
Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar.
Ráðlegt er fyrir göngufólk að mæta tímanlega því gangan leggur af stað stundvíslega.
Friðargöngur verða einnig haldnar á Akureyri og á Ísafirði.
Nánari upplýsingar gefa:
Steinunn Þóra Árnadóttir Sími: 690 2592/551 2592
Ingibjörg Haraldsdóttir Sími: 849 5273/552 8653
Friðarganga á Ísafirði verður með hefðbundnu sniði og hefst klukkan 18. Á Þorláksmessu. Gengið verður frá Ísafjarðarkirkju niður á Silfurtorg. Ræðumenn dagsins verða Peter Weiss forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða og Matthildur Helgadóttir og Jónudóttir. Að auki verður tónlistar – og ljóðaflutningur.
Hin árlega Blysför í þágu friðar
verður gengin á Þorláksmessu á Akureyri (þriðjudag).
Gengið verður frá Samkomuhúsinu í Hafnarstræti kl. 20.00 og út á Ráðhústorg.
Hér má finna grein um friðargöngur sem birtist í jólablaði SFR
Samstarfshópur friðarhreyfinga:
Félag leikskólakennara.
Friðar- og mannréttindahópur BSRB
Friðar- og mannréttindanefnd Æskulþðssambands þjóðkirkjunnar
Menningar og friðarsamtökin MFÍK
SGI á Íslandi (Friðarhópur búddista)
Samtök hernaðarandstæðinga
Myndin er frá annarskonar blysför þ.e. blysför sveitunga Halldórs Laxness skömmu eftir að hann kom heim með Nóbelsverðlaunin.
Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Friðargöngur“, Náttúran.is: 21. desember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/12/21/frioargongur/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. desember 2008