Borgarráð fól í dag umhverfis- og samgönguráði að láta framkvæma könnun á viðhorfi borgarbúa til umhverfismála. „Við viljum kanna hvað Reykvíkingar vilja gera næst í umhverfismálum og hvað hver og einn vill leggja að mörkum,“ segir Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.

Borgarráð vill láta kanna viðhorf borgarbúa til vistvæns lífsstíls en það er þema Dags umhverfisins og viðfangsefni sýningar sem stendur yfir í Perlunni. Niðurstaða viðhorfskönnunar til umhverfismála á að vera Reykjavíkurborg leiðarljós Grænu skrefanna sem næst verða stígin að mati Gísla Marteins. „Við viljum vita hvar Reykvíkingar vilja gera betur í umhverfismálum, upplýsingar sem könnunin veitir verða notaðar til að gera borgina enný á grænni,“ segir hann.

Í samþykkt borgarráðs í dag stendur að Reykjavíkurborg leggi áherslu á fræðslu, opna umræðu og samráð um umhverfismál. „Öðruvísi getur borgin ekki virkjað íbúa sína til þátttöku í umhverfismálum. Án þátttöku borgarbúa getur Reykjavíkurborg ekki viðhaldið þeim umhverfisgæðum sem við búum við í dag. Reykjavíkurborg þarf að stuðla að því að borgarbúar taki tillit til umhverfisins í daglegri hegðun sinni. Með þetta að markmiði hefur Reykjavíkurborg látið verkin tala í gegnum Grænu skrefin þar sem námsmönnum hefur verið gefið frítt í strætó, visthæfir bílar hafa fengið ókeypis í bílastæði, þjónusta við endurvinnslu úrgangs hefur verið bætt o.fl. “
Birt:
25. apríl 2008
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Vistvænn lífsstíll Reykvíkinga kannaður “, Náttúran.is: 25. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/25/vistvaenn-lifsstill-reykvikinga-kannaour/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: