Svaraðu kallinu - gamli gemsinn bjargar

Greener Solutions flokkar símana, hluti þeirra fer í endurvinnslu þar sem ýmsir málmar, svo sem gull og palladium, og plastið er endurunnið. Þeir símar sem eru nothæfir eru gerðir upp og sendir til þróunarlanda þar sem þeir eru seldir á vægu verði.
Með þessu átaki hagnast allir; fólk losnar við gömlu símana, styrkir björgunarsveitir, sýnir umhverfisvernd í verki og aðstoðar fátækari íbúa heimsins að eignast síma sem oft koma að góðum notum, bæði félagslega og fjárhagslega.
Björgunarsveitirnar hófu móttöku á gsm símum á flugeldasölustöðum um allt land en þeir opnuðu sunnudaginn 28. desember. Nú þegar hafa 10 þúsund gemsar safnast. Einnig voru settir upp kassar á bensínstöðvum N1 á höfuðborgarsvæðunum sem og í verslunum símafyrirtækja en söfnunin mun standa til 15. janúar nk.
Birt:
7. janúar 2009
Tilvitnun:
Landsbjörg „Svaraðu kallinu - gamli gemsinn bjargar“, Náttúran.is: 7. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/07/svaraou-kallinu-gamli-gemsinn-bjargar/ [Skoðað:12. mars 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.