Göngum með Ómari - þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir
Fréttatilkynning:
Boðað er til fjöldagöngu með Ómari Ragnarssyni frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 20.00 á þriðjudag. Ómar hefur kynnt hugmyndir um nýjar leiðir sem fela í sér að hægt verði að afla raforku til að knýja álverið í Reyðarfirði án þess að fórna þeim náttúruperlum sem færu undir fyrirhugað Hálslón. Ómar leggur til að fyllingu Hálslóns verði frestað og Kárahnjúkavirkjun verði geymd ógangsett sem magnað minnismerki um hugrekki þjóðar sem leitaði sátta við kynslóðir framtíðarinnar og eigin samvisku.
-
Ómar kynnti þessar hugmyndir sínar á blaðamannafundi á dögunum. Við tökum áskorun hans og sýnum stuðning okkar í verki með því að safnast saman og ganga niður Laugaveginn. Við hvetjum þig til að gera slíkt hið sama.
-
Því er boðað til Jökulsárgöngu niður Laugaveginn á þriðjudaginn 26. september kl 20.00 frá Hlemmi að Austurvelli
-
Horfumst í augu við siðferðislegar skyldur okkar gagnvart landi og náttúru – Göngum með Ómari niður Laugaveg á þriðjudaginn.
-
Sjá auglýsinguna stærri til útprentunar og upphengingar.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Göngum með Ómari - þjóðarsátt fyrir komandi kynslóðir“, Náttúran.is: 24. september 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/gongum_med_or/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 2. maí 2007