Á 17. júní kl. 12:00 verður haldin stofnfundur um Framtíðarlandið - félag um framtíð Íslands í Austurbæ.
Frumkvæðið að stofnun félagsins kemur frá einstaklingum af ólíkum sviðum þjóðlífssins sem telja að nú sé þörf fyrir afl sem upplýsir, gagnrýnir og leggur til hugmyndir að nýrri framtíðarsýn á Íslandi og að nauðsyn beri til að efla lýðræði og lýðræðislega umræðu – og grundvallarþætti samfélagsins: réttlæti, menntun og skapandi atvinnustefnu.

Framtíðarlandið er þverpólitískur mótsstaður með víðtækri þátttöku frumkvöðla, fræðimanna, viðskiptafólks, listamanna og einstaklinga af öllum sviðum atvinnulífsins. Framtíðarlandið á að vera vettvangur frjórra hugmynda um virkjun mannauðs og hugmyndaríkra einstaklinga.
Framtíðarlandinu er stefnt gegn einhæfri, úreltri atvinnustefnu þar sem höfuðáhersla er lögð á stóriðju með tilheyrandi vatnsaflsvirkjunum og stórfelldri og óáfturkræfri eyðileggingu náttúru og lands. Félagið hafnar ríkisrekinni byggðastefnu og stórfelldum „ríkisstýrðum“ stórverkefnum. Félagið vill sporna við fótum áður en kostir og möguleikar lands og þjóðar verða þrengdir enn meir en þegar hefur orðið.

Framtíðarlandið er vettvangur einstaklinga sem lætur sig framtíð – og nútíð – Íslands varða. Félagið vill jákvæða, skapandi atvinnustefnu í mannvænu, vistvænu, og lýðræðislegu andrúmslofti. Félagið vill kvikan og frjóan jarðveg þar sem frumkvöðlar og sprotafyrirtæki dafna; þar sem snjallar viðskiptahugmyndir fá að njóta sín; þar sem einstaklingurinn – og samfélagið – er skapandi.

Hægt er að gerist stofnfélagi á: www.framtidarlandid.is

Birt:
16. júní 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Framtíðarlandið - félag um framtíð Íslands“, Náttúran.is: 16. júní 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/framtlandid_felag/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 16. maí 2007

Skilaboð: