Um tugur manna vinna að því að dæla svartolíu upp úr sjónum við Örfirisey en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tókst að hefta útbreiðslu olíunnar með flotgirðingum.

Þá er veður hagstætt en um tíu slökkviliðsmenn eru að störfum ásamt mannskap frá Reykjavíkurhöfn og Olíudreifingu. Togarinn, sem olían lak úr heitir Eldborg og er gerður út frá Litháen, en það var verið að dæla svartolíu um borð í skipið þegar óhappið varð um klukkan þrjú í dag.

Varðstjóri slökkviliðsins segist vongóður um að slökkviliðsmönnum takist að hreinsa mestu olíuna upp. Það hafi í það minnsta gengið vel hingað til. Búist er við að slökkviliðið verði eitthvað fram eftir degi við hreinsunina en magnið sem fór ofan í sjóinn er talið vera á bilinu 500 til 3000 lítrar.

Vísir greindi frá því fyrr í dag að fréttamönnum hefði ekki verið leyft að mynda aðgerðirnar. Það hefur breyst en fréttamaður Stöðvar 2 er þar nú og verður nánar fjallað um málið í kvöldfréttum.

Fréttin á Vísir.is

Birt:
13. febrúar 2011
Höfundur:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
Fréttablaðið „Náðu að hefta útbreiðslu svartolíunnar - hreinsun gengur vel“, Náttúran.is: 13. febrúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/02/13/nadu-ad-hefta-utbreidslu-svartoliunnar-hreinsun-ge/ [Skoðað:3. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: