Sjálfboðavinna á Þingvöllum
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd munu vinna að endurbótum á göngustígum í Þingvallaþjóðgarði um Jónsmessuhelgina, frá föstudegi til sunnudags, 22.-24 júní.
Fólk getur valið um að vinna alla þrjá dagana eða skemmri tíma, til dæmis staka daga án gistingar.
Mjög gott tækifæri til að kynnast hluta af Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Sjálfboðaliðar tjalda í boði þjóðgarðsins. Matargerð verður að mestu sameiginleg og matarkostnaður lítill. Fólk kemur á einkabílum og sameinast í bíla þannig að allir fái far.
Skráning og nánari upplýsingar: Þorvaldur s. 895 6841 eða Sigrún s. 567 2149.
Ljósmynd: Þingvellir ©Árni Tryggvason.
Birt:
19. júní 2012
Tilvitnun:
Þorvaldur Örn „Sjálfboðavinna á Þingvöllum“, Náttúran.is: 19. júní 2012 URL: http://nature.is/d/2012/06/19/sjalfbodavinna-thingvollum/ [Skoðað:8. mars 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.