Hvað má fara í tunnuna?
Í bláu tunnuna má setja öll dagblöð, tímarit, markpóst og annan prentpappír auk þess má setja fernur, umbúðapappír, sléttan pappa og karton frá og með 1. febrúar 2009. Bláu tunnurnar eru sömu stærðar og svörtu og grænu heimilistunnurnar.

Hvað kostar bláa tunna?
Verð fyrir bláu tunnuna er 7.400 kr. á ári. Tunnan er eign borgarinnar og leiguverð innifalið í árlegu sorphirðugjaldi fyrir tunnuna.

Hvernig er losun háttað?
Bláu tunnurnar eru losaðar á þriggja vikna fresti. Þar sem mikill markpóstur er í umferð um jól og áramót er aukalosun í desember og heildarfjöldi losanna á ári því 18. Tunnurnar eru sóttar inná lóðir íbúa við losun líkt og svörtu og grænu heimilistunnurnar. Ef tunnan er höfð í læstri sorpgeymslu þarf að koma lykli að geymslunni til Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar sem kemur honum áfram til losunaraðila.

Panta bláu tunnuna: sorphirda@reykjavik.is.

Birt:
April 25, 2008
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Bláa tunnan“, Náttúran.is: April 25, 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/07/blaa-tunnan/ [Skoðað:Dec. 9, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: May 7, 2008
breytt: June 19, 2012

Messages: