Vísindavaka verður haldin Í FSN í Grundarfirði þann 18. október 2008 kl. 14:00-18:00.

Vísindavakan er opinn dagur fyrir alla sem vilja koma og kynna sér starfsemi W23 hópsins og náttúrufarsrannsóknir á Snæfellsnesi. Tilvalið að taka börnin með!

Vísindavakan er haldin af W23 hópnum í samstarfi við Hafrannsóknastofnunina. W23 er samstarf fjögurra aðila á Snæfellsnesi: Háskólaseturs Snæfellsness, Náttúrustofu Vesturlands, Varar Sjávarrannsóknarseturs við Breiðafjörð og Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls. Markmið hópsins er að auka rannsóknir og hvers kyns samstarf stofnananna, með bættum skilningi á náttúru Vesturlands og fjölgun starfa í náttúruvísindum að leiðarljósi. Heiti samstarfsins er W23 sem vísar í vestlæga hnattstöðu Snæfellsness og hraða lognsins á svæðinu.

Tímasettir atburðir:

14:00-14:20 Vísindavakan opnuð, W23 hópurinn kynntur.
14:20-14:30 Hafrannsóknastofnunin - kynning á starfsemi útibús í Ólafsvík.
14:30 Minkur krufinn af starfsmanni Náttúrustofu Vesturlands.
Krufning endurtekin kl. 15:30 og 16:30
15:00 Sjófugl krufinn af starfsmanni Háskólaseturs Snæfellsness.
Krufning endurtekin kl. 16:00 og 17:00

Yfir allan daginn:

  • Komdu þér í nánari kynni við fisk. Fiskasýning, fiskur aldursgreindur – rýnt í kvarnir. Veggspjöld með kynningu á verkefnum innan W23 eininganna.
  • Myndasýningar úr safni starfsfólks W23. Brot úr starfseminni og náttúru Vesturlands.
  • Kynning á starfi eininga innan W23 og ýmislegt forvitnilegt til að sjá og snerta:
  • Lifandi beitukóngar og krabbar til sýnis og skoðunar.
  • Plöntur, hauskúpur o.fl. spennandi úr þjóðgarðinum.
  • Beitukóngur úr Breiðafirði, litarafbrigði og lögun.
  • Dþrasvif úr Breiðafirði – smátt en smart .
  • Beitukóngur krufinn og aldursgreindur – rýnt í lokur.
  • Ýmis rannsóknatæki og -tól til sýnis.
  • Kleinur og kaffi í Vísindavökubollum sem má taka með heim.
  • Vísindagetraun með glæsilegum vinningum frá Sæferðum (Stykkishólmi).

Skemmtilegt og fræðandi fyrir alla fjölskylduna.

Myndin: Evrópskur minkur. dosmaps.com

Birt:
15. október 2008
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Þér er boðið á Vísindavöku í Grundarfirði“, Náttúran.is: 15. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/15/ther-er-booio-visindavoku-grundarfiroi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: