Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Boðað er til stofnfundar samtaka áhugafólks um umhverfi og vellíðan fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík. Á fundinum verður farið yfir aðdraganda og markmið samtakanna. Lögð verður fram tillaga að lögum og skipuð sjö manna bráðabirgðastjórn sem sitja mun fram að aðalfundi sem haldin verður í apríl 2009.
Að loknum stofnfundarstörfum verður boðið upp á fimm áhugaverð ör-erindi en þau eru:
- Áhrif hverfahönnunar á útiveru og hreyfingu barna - Kristín Þorleifsdóttir Ph.D.-umhverfishönnun, landslagsarkitekt FÍLA
- Fegrun neðanjarðarganga á Landsspítalanum - Auður I Ottesen garðyrkjufræðingur/smiður, ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn
- Endurheimt í byggðu umhverfi - Páll Líndal doktorsnemi í umhverfissálfræði við Háskólann í Sydney
- Nærumhverfið er musteri sálarinnar! - Anna María Pálsdóttir doktorsnemi í umhverfissálfræði
- Bjargráð í hjúkrun - Þóra Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur
Drög að markmiðum með stofnun samtakanna
Markmið samtaka áhugafólks um umhverfi og vellíðan eru m.a. að:
- Skapa vettvang fyrir umræður, fróðleik og átaksverkefni. Á slíkum vettvangi geta ólíkir geirar samfélagsins deilt hugmyndum og miðlað af reynslu, sem gæti leitt af sér frjóa umræðu, fræðandi skrif, fræðslu og ábendingar sem leiða til umbóta. Slíkt leiðir mögulega til hvers kyns samvinnu og samheldni, auk þess sem nýir vinklar eða forsendur skapast.
- Stilla saman strengi þeirra sem láta sig varða umhverfisgæði og áhrif umhverfis á vellíðan - "maðurinn einn er ei nema hálfur - með öðrum er hann meiri en hann sjálfur".
- Móta þrýstihóp með áherslu á að sjónarmið umhverfisgæða og lþðheilsu fái meira vægi í þjóðfélagsumræðunni
- Tengjast erlendum samtökum sem starfa á þessum vettvangi t.d.:
- EDRA (Environment, Design, Research Association) er alþjóðleg samtök áhugafólks um áhrif umhverfis á atferli og heilsu. EDRA samtökin halda árlega ráðstefnu þar sem umhverfissálfræðingar, arkitektar, landslagsarkitektar, skipulagsfræðingar, félagsfræðingar, lþðheilsufræðingar, læknar og margir aðrir bera saman bækur sínar. Markmiðið með EDRA er að rannsaka tengslin milli manns og umhverfis, bæði hins byggða og náttúrulega og hanna umhverfi sem mætir þörfum fólks. Nánar um EDRA sjá edra.org
Að undirbúningi um stofnun samtaka áhugafólks um umhverfi og vellíðan hafa staðið þau Auður I Ottesen, Páll Líndal, Anna María Pálsdóttir, Kristín Þorleifsdóttir, Þóra Karlsdóttir og Guðbjörg Garðarsdóttir.
ALLIR áhugasamir eru hvattir til að mæta. Vinsamlega staðfestið komu ykkar á stofnfundinn á netfangið audur@rit.is.
p.s. Auglýst er eftir þjálu nafni á samtökin!
Mynd: Litlir fætur í sandfjöru Laugarvatns. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Auður I. Ottesen „Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum“, Náttúran.is: 28. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/28/samtok-ahugafolks-um-umhverfi-og-vellioan-i-buroar/ [Skoðað:25. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.