Græna netið, félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina, kærði í dag til umhverfisráðherra ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009 um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og tengdra framkvæmda.

Kæra Græna netsins byggist á því að ávinningur af sameiginlegu mati línulagnar, áformaðs álversrekstrar við Helguvík, virkjana o.fl. framkvæmda náist ekki með umhverfismati hverrar og einnar af þessum framkvæmdum. Græna netið telur að réttur almennings til fullrar upplýsingar og áhrifa vegi þyngra en rök Skipulagsstofnunar um óhagræði framkvæmenda af sameiginlegu mati og vísar til laga og lögskýringargagna í því sambandi.

Aðeins með heildstæðu mati á þeim framkvæmdum sem nauðsynlegar eru til að mæta orkuþörf vegna rekstrar álversins við Helguvík og til annarra nota verða áhrif þeirra að fullu leidd í ljós, svo sem sjónræn áhrif vegna línulagna og bygginga, rask vegna veglagningar og efnistöku í sambandi við framkvæmdirnar, áhrif á loftgæði og hljóðvist vegna umferðar og framleiðslu.

Græna netið vekur sérstaka athygli á því að hvergi liggur fyrir hvaða orkuöflunarkosti á að nýta fyrir fullbyggt 360 þúsund tonna álver við Helguvík með 630 MW orkuþörf. Meðan ekki fæst skorið úr því og öðrum álitamálum eru ekki forsendur til að meta legu og umfang Suðvesturlínu. Þegar horft er til legu þeirra virkjunarkosta sem helst hafa verið nefndir í þessu sambandi er ljóst að núverandi tillögur um legu Suðvesturlínu kalla á talsvert lengri tengingar en ef línustæðið yrði lagt suður Þrengslin, framhjá Þorlákshöfn og meðfram fyrirhuguðum Suðurstrandarvegi, en ekki yfir vatnsból og vatnsverndarsvæði höfuðborgarinnar og grannbyggða.

Græna netið er „félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina“ og eru í því bæði félagar í Samfylkingunni og umhverfissinnar utan flokka. Katrín Theodórsdóttir lögræðingur og stjórnarmaður í Græna netinu skrifar undir kæruskjalið fyrir hönd félagsins.

Ljósmynd: Raflínur og álverið í Straumsvík, Árni Tryggvason.

Birt:
4. desember 2009
Höfundur:
Græna netið
Tilvitnun:
Græna netið „Græna netið kærir úrskurðinn um Suðvesturlínur“, Náttúran.is: 4. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/04/graena-netio-kaerir-urskuroinn-um-suovesturlinur/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: