Gervivísindi LÍÚ

Í tilkynningu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands frá 3. júlí 2007 segir:
Landssamband íslenskra útgerðarmanna situr fast við sinn keip og hafnar ráðleggingum vísindamanna um verulegan samdrátt í þorskafla. Í stað þess - og án frekari rökstuðnings - leggur LÍÚ til að hvalveiðar verði stórauknar.
Á fundi vísindanefndar NAMMCO* s.l. nóvember varð niðurstaða vísindamanna sú að "Once again the [NAMMCO] Scientific Committee was forced to conclude that it could not provide the requested advice on the economic aspects of fishery - marine mammal interactions in the 2 areas (Barents Sea and Iceland) and with the two species (minke whales and harp seals) that have been identified as feasible for this assessment."
Í stað þess að gera hvali að blóraböggli ætti LÍÚ að sýna ábyrgð og viðurkenna niðurstöður vísindamanna um að draga verði úr þorskveiðum um 63 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári.
*North Atlantic Marine Mammal Commission eða Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið.
Birt:
2. júlí 2007
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Gervivísindi LÍÚ “, Náttúran.is: 2. júlí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/07/02/gervivsindi-l/ [Skoðað:23. febrúar 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. júlí 2007