Borgir reikna losun sína
Sumar af stærstu borgum Bandaríkjanna hafa tekið sig saman um að mæla og greina frá koltvísýringslosun sinni í fyrsta sinn, undir merkjum nýrrar áætlunar sem tekur til 21 borgar í landinu.
Ætlunin er að borgirnar geti þannig sýnt á mælanlegan hátt hver frammistaða þeirra er í baráttunni við losun gróðurhúsalofttegunda.
Á meðal borganna sem um ræðir eru stórborgir á borð við New York, Las Vegas, New Orleans, Denver og Portland, en einnig minni borgir svo sem Saint Paul í Minnesota og West Palm Beach í Flórída.
Birt:
18. ágúst 2008
Tilvitnun:
Viðskiptablaðið „Borgir reikna losun sína“, Náttúran.is: 18. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/18/borgir-reikna-losun-sina/ [Skoðað:27. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 19. ágúst 2008