Sýningin Facing the Climate sem opnar í Norræna húsinu á morgun tekst á við loftlagsbreytingarnar frá skoplegu sjónarhorni.

Hópur 25 sænskra skopmyndateiknara komu með húmoríska en jafnframt ógnvekjandi sýn á loftlagsbreytingarnar í tilefni af loftlagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn í desember 2009. The Swedish Institute á frumkvæði að sýningunni og er henni ætlað að vekja athygli á sjálfbærri þróun.

Skopmyndateiknararnir sem taka þátt í sýningunni eru: Magnus Bard, Riber Hansson, Helena Lindholm, Love Antell and Karin Sunvisson. Myndir þeirra, sem oft eru umdeildar, birtast reglulega í sænskum og alþjóðlegum dagblöðum og tímaritum.

Teikning: Riber Hansson.

Birt:
10. september 2010
Uppruni:
Norræna húsið
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Loftslagsbreytingar skoðaðar frá teikniborðinu“, Náttúran.is: 10. september 2010 URL: http://nature.is/d/2010/09/10/loftslagsbreytingar-skodadar-fra-teiknibordinu/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. september 2010

Skilaboð: