Jarðskjálftahrina á Reykjanesi
Í gærkvöldi hófst jarðskjálftahrina á Reykjanesi sem byrjaði með jarðskjálfta að stærða 4,7 en upptök hans voru um 8 km norðaustur af Grindavík. Sá jarðskjálfti fannst víða um suðvestanvert landið.
Margir eftirskjálftar hafa komið í kjölfarið og hafa nokkrir þeirra farið yfir 3,0 og þar af einn sem kom í dag að stærð 4,5. Veðurstofan útilokar ekki að fleiri jarðskjálftar af svipaðri stærð verði á svæðinu næstu daga og jafnvel lengur.

Birt:
30. maí 2009
Tilvitnun:
NA „Jarðskjálftahrina á Reykjanesi“, Náttúran.is: 30. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/30/jaroskjalftahrina-reykjanesi/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.