Marine Stewardship Council vottun
Orð dagsins 19.júní 2008
Ufsaveiðar Norðmanna fengu í gær umhverfisvottun alþjóðlegu vottunarsamtakanna MSC (Marine Stewardship Council). Þetta er fyrsta MSC-vottunin sem norskar útgerðir fá, en með þessu verður hægt að markaðssetja og selja um 250.000 tonn af MSC-vottuðum norskum ufsa árlega. Samtök útvegsmanna í Noregi (Fiskebåtredernes Forbund) líta á vottunina sem mikilvægan þátt í að undirstrika lögmæti og sjálfbærni norskra fiskveiða, auk þess sem hún muni reynast mjög dýrmæt við sölu á norskum ufsa á umhverfismeðvituðum mörkuðum. Vottunin sem tilkynnt var um í gær nær til tveggja stórra útgerðarfyrirtækja, en fjögur önnur norsk útgerðarfyrirtæki hafa þegar hafið undirbúning að sams konar vottun fyrir þorsk, þsu, makríl og síld.
Lesið frétt World Fishing í gær
og frétt á heimasíðu Fiskebåtredernes Forbund
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Marine Stewardship Council vottun“, Náttúran.is: 19. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/19/marine-stewardship-council-vottun/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 20. júní 2008