Eldvötn – samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi eru grasrótarsamtök áhugafólks á landsvísu sem vill stuðla að verndun hinnar stórbrotnu og síkviku náttúru á því víðlenda svæði sem tilheyrir sveitarfélaginu Skaftárhreppi. Stofnfundur var haldinn þann 28. júní 2010 af áhugafólki búsettu í Skaftárhreppi.  Sunnudaginn 14. nóvember sl. var svo haldinn, á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, framhaldsstofnfundur  samtakanna.

Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur  ávarpaði fundinn. Í máli sínu lagði hún m.a. áherslu á mikilvægi þess að náttúran eigi sér talsmenn og að þar komi náttúruverndarsamtök að miklu gagni. Gæta þurfi sérstaklega að verndun náttúru Skaftárhrepps  sem er að mörgu leyti einstök og síbreytileg þar sem  landmótun er stöðugt í gangi.
Í lögum samtakanna  segir eftirfarandi um markmið þeirra:

„Markmið samtakanna er að vera málsvari umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiða, fyrst og fremst.  Þessum markmiðum hyggjast samtökin ná með því að:

  • Efla vitund almennings – einkum íbúa Skaftárhrepps – um  gildi náttúrunnar, umhverfismál og náttúruvernd.
  • Veita stjórnvöldum og framkvæmdaaðilum gagnrýnið aðhald.

Stofnfélagar eru þeir sem undirrita stefnuyfirlýsingu Eldvatna fyrir árslok 2010.  Félagið er opið öllum lögráða einstaklingum er leggja vilja umhverfis- og náttúruvernd lið, í samræmi við markmið samtakanna og lög þeirra“.

Á framhaldsstofnfundinum var  stefnuyfirlýsing samtakanna  samþykkt samhljóða og er hún eftirfarandi:
„Undanfarna áratugi hefur á margan hátt verið staðið vel að umhverfis- og náttúruverndarmálum í Skaftárhreppi.
-Síðustu misserin hafa í sveitarfélaginu verið uppi háværar raddir um að nýta landið á ágengan hátt á kostnað náttúrunnar. Á það ekki síst við um hugmyndir sem lúta að virkjunum á jökulvötnum svæðisins. Samtökin leggjast eindregið gegn slíkum hugmyndum um nýtingu náttúrunnar.

Skaftárhreppur er um 7 % af Íslandi, hér er stórbrotin náttúra í sífelldri mótun; lítt raskað verðmætt víðerni. Undirstaða atvinnulífs í sveitarfélaginu er landbúnaður og ferðaþjónusta. Vaxandi áhersla er á rannsóknir og fræðslutengda starfsemi.

Samtökin  vilja að við alla ákvarðanatöku á svæðinu verði sjálfbær þróun  höfð að leiðarljósi og þannig horft til náttúru, efnahags og félagslegra þátta“.

Hægt er  fá nánari upplýsingar og skrá sig í samtökin með því að senda póst á netfangið eldvotn@gmail.com

Birt:
16. nóvember 2010
Tilvitnun:
Ólafía Jakobsdóttir „Stofnun Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi“, Náttúran.is: 16. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/16/stofnun-eldvatna-samtaka-um-natturuvernd-i-skaftar/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: