Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Impra nýsköpunarmiðstöð hafa gert samkomulag um nýtt stuðningsverkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttari atvinnusköpunar í sveitum landsins. Verkefnið hefur verið nefnt Vaxtarsprotar.
-
Verkefnið er tvískipt, annars vegar hvatning og fræðsla sem stendur yfir í fjóra til sex mánuði og hins vegar stuðningur og handleiðsla sem getur varað í allt að tvö ár. Áhugaverðum verkefnum er fylgt eftir með tvíþættum fjárstyrkjum, undirbúningsstyrkjum sem geta numið allt að 400.000 kr. vegna einstakra viðskiptahugmynda og mögulega stærri styrkjum sem veittir eru þátttakendum sem lokið hafa gerð viðskiptaáætlunar og/eða eru lengra komnir með nýja viðskiptahugmynd.

Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni og verður verkefninu hrundið af stað á tveimur svæðum á árinu 2007. Þau svæði sem verkefnið mun beinast að á árinu 2007 eru annars vegar Suðurland og hins vegar Húnavatnssýslur og Strandir. Svæðin eru skilgreind með tilliti til starfssvæða ráðunautaþjónusta í landbúnaði en verkefnið er unnið í nánu samstarfi við ráðunauta á hverju svæði sem og atvinnuþróunarfélög og/eða atvinnuráðgjafa.
-
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit, óháð eðli viðskiptahugmynda eða þeim atvinnugreinum sem viðskiptahugmyndir beinast að.
Verkefninu verður hrundið formlega af stað með kynningarfundum sem hafa það að markmiði að hvetja fólk til að skoða tækifæri í nánasta umhverfi, möguleika á stofnun fyrirtækja eða aukningu umsvifa starfandi fyrirtækja. Tilgangur þessara funda er ekki að ræða atvinnumál viðkomandi svæðis almennt, heldur að beina sjónum að tækifærum einstaklinga á svæðinu. Impra hefur fengið í lið með sér áhugaverða fyrirlesara sem flytja munu erindi á fundunum auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega.
-
Þátttakendur njóta handleiðslu Impru nýsköpunarmiðstöðvar á verkefnistímabilinu en slík þjónusta er hluti af reglulegri starfsemi Impru. Elín Aradóttir verkefnisstjóri hjá Impru veitir nánari upplýsingar um verkefnið í síma 4607970 eða gegnum tölvupóst elina@iti.is

Myndin er af skilti við rjómabúið á Baugsstöðum sem stofnað var af bændum í Stokkseyrarhreppi og nágrannahreppum árið 1905 og starfrækt til 1952. Þar var framleitt smjör og ostar og var búið á sínum tíma sannkallað „nýsköpunarverkefni“. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum í júlí og águst frá kl.13:00 - 18:00 og eftir samkomulagi við safnvörð, sími 486 3369. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
28. janúar 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Vaxtarsprotar - nýtt þróunarverkefni“, Náttúran.is: 28. janúar 2007 URL: http://nature.is/d/2007/03/16/vaxtarsprotar/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. mars 2007
breytt: 30. apríl 2007

Skilaboð: