Stjórn Græna netsins lýsir furðu á vilja 6 þingmanna Samfylkingarinnar til að setja 700 milljónir af almannafé í að byggja upp einkahöfn fyrir 360.000 tonna álver í Helguvík. Ljóst er sú fórn mun engu breyta um eftirfarandi staðreyndir:

  • Orku vantar fyrir meira en helminginn af fyrirhuguðu álveri
  • Orkufyrirtækin vantar fjármagn til virkjunar á þeirri orku sem til er
  • Stór hluti þeirrar orku sem fyrirhugað er að virkja er bundin skipulagsvaldi sveitarfélaga sem vilja heldur að orkan sé nýtt til atvinnusköpunar í viðkomandi sveitarfélagi
  • Ekki er sátt um legu SV línu t.a.m. hafa fulltrúar Ölfuss lýst því yfir að línan verði ekki lögð um lendur þess nema að hluti af orku Hengilsins fari til atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu.
  • Fengist fjármagn í virkjun þeirrar orku sem til er yrði það á mun hærri vöxtum en áformað var og því ljóst að orkufyrirtækin þurfa mun hærra verð fyrir orkuna en gert var ráð fyrir í upphafi
  • Hærra orkuverð setur fjármögnun Norðuráls á álverinu í Helguvík í enn frekara uppnám sem þó var nægt fyrir

Stjórn Græna netsins skorar á sexmenningana að rifja upp samþykktir landsfundar Samfylkingarinnar frá 2009 t.d. kaflann „Efnahagsleg endurreisn“ þar sem m.a. segir:

Endurreisnin verður að miðast við græn grunngildi sem fela í sér sjálfbæra nýtingu auðlinda til lands og sjávar og traustan grunn fyrir  stöðugleika og varanlegar lausnir. Tími töfralausna er liðinn.

Einnig gæti kaflinn „Atvinna fyrir alla“ verið þeim holl upprifjun en hvergi er þar að finna orð um að nota skattfé almennings í að niðurgreiða vanhugsaðar töfralausnir.

Þess má geta að þær 700 milljónir sem umræddir þingmenn Samfylkingarinnar vilja taka af almenningi til að niðurgreiða einkahöfn fyrir erlent álfyrirtæki er um það bil sama upphæð og Tækniþróunarsjóður fær á ári til að styðja við bakið á nýjum sprotafyrirtækjum.

Á síðasta ári varð Tækniþróunarsjóður að neita 80% umsókna um stuðning vegna skorts á fjármunum. Efling sjóðsins hefur lengi verið baráttumál Samfylkingarinnar enda vandfundin betri leið til að efla nýsköpun í atvinnulífinu, skapa fjölda nýrra starfa, auka verðmætasköpun og útflutning.

Þegar styðja á við bakið á atvinnuuppbyggingu með almannafé verður að gera kröfu um að verkefni séu arðbær, ferlið við mat á þeim sé gegnsætt og að allir hafi sömu möguleika á að njóta stuðnings. Efling Tækniþróunarsjóðs er dæmi um slíkar aðgerðir en vel má hugsa sér svæðisbundna útfærslu á slíkum aðgerðum.

700 milljónir af almannafé til niðurgreiðslu á einkahöfn í Helguvík er hins vegar augljóst dæmi um kjördæmapot, fyrirgreiðslupólitík og pólitísk hrossakaup.

Birt:
11. október 2010
Höfundur:
Græna netið
Tilvitnun:
Græna netið „Yfirlýsing frá stjórn Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina“, Náttúran.is: 11. október 2010 URL: http://nature.is/d/2010/10/11/yfirlysing-fra-stjorn-graena-netsins-felags-jafnad/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: