Myndakvöld Ferðafélags Íslands í kvöld miðvikudagskvöldið 15. apríl fjallar um Austurdal í Skagafirði. Sýndar verða myndir og sagt frá dalnum. Kynntar verða gönguferðir um dalinn, bæði dags- og helgarferðir. Myndasýningin verður í húsnæði Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6 í Reykjavík.

Austurdalur er afar friðsæll, býr yfir mikilli náttúrufegurð og lætur engan ósnortinn sem um hann fer.  Gísli Rúnar Konráðsson sýnir.  Einnig verða sýndar myndir frá ferðum Þórhalls Ólafssonar á 151 tind.  Guðmundur Jónsson  og Þórhallur sýna myndir og segja frá verkefninu.  Myndakvöldið hefst kl. 20:00.  Aðgangseyrir kr. 600. Innifalið kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.

Birt:
15. apríl 2009
Tilvitnun:
Ferðafélag Íslands „Austurdalur í Skagafirði - Myndakvöld FÍ“, Náttúran.is: 15. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/15/austurdalur-i-skagafiroi-myndakvold-fi/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: