Orkusetur og Vistvæn Orka ehf hófu samstarf árið 2009 um smíði og prófanir á ljósdíóðulömpum sem þróaðir eru á Íslandi. Fyrirtækið Vistvæn Orka ehf. hefur unnið að þróun hagkvæmra gróðurhúsalampa sem byggja á LED ljósdíóðutækni og ætlaðir eru fyrir garðyrkjubændur sem hafa blóma- og matjurtarækt að atvinnu. Meðal nýjunga er hár endingartími, eða allt að 100.000 klst., mikill raforkusparnaður í samanburði við háþrýsta natríumlampa (HPS) og svo er innbyggð þjófavörn í kælikerfi lampanna.

Vistvæn Orka ehf hefur lokið fyrsta áfanga í prófunum á lömpunum. Nokkrir LED ljósdíóðulampar hafa hafa verið í prófunum í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum, Ölfusi frá því í byrjun desember 2009. Lamparnir sem eru vatnskældir hafa staðist allar væntingar um stöðugt ljósmagn, orku- og kæliþörf. \342\200\250\342\200\250Í lok janúar hófust síðan ræktunarprófanir á papriku í tilraunagróðurhúsinu sem munu standa yfir fram á sumar. Fyrstu paprikuplönturnar dafna vel undir LED ljósdíóðulömpunum og verða margvíslegar mælingar framkvæmdar meðan á tilrauninni stendur.\342\200\250\342\200\250Til að geta framleitt íslenskt grænmeti allt árið um kring er raflýsing grundvallaratriði með tilheyrandi raforkunotkun. Garðyrkjubændur nota mikið rafmagn en raforkunotun til gróðurhúsalýsingar í atvinnuskyni var um 62 GWst árið 2008. Þetta samsvarar raforkunotkun 13 þúsund heimila. Raforkukostnaður vegur þungt í þessari atvinnugrein en til að bæta samkeppnisstöðu greinarinnar niðurgreiðir ríkið kostnað við raforkudreifingu. Árið 2008 greiddi ríkið um 167 milljónir í niðurgreiðslur á raforkudreifngu til greinarinnar. Það ætti því að vera hagsmunamál beggja aðila að reyna með öllum hætti að lækka raforkukostnað garðyrkubænda og ríkis.\342\200\250\342\200\250Með ljósdíóðulömpunum gæti verið mögulegt að ná fram verulegum orkusparnaði sem dregur úr rekstrarkostnaði garðyrkjustöðva og lækkar jafnframt framtíðarniðurgreiðslur ríkisins. Orkusetur mun birta allar niðurstöður og kynna fyrir garðyrkjubændum um leið og staðfest tölfræðigögn liggja fyrir.
Mynd: LED ljósdíóður, Wikipedia.

Birt:
15. febrúar 2010
Tilvitnun:
Sigurður Ingi Friðleifsson „Prófanir á LED ljósdíóðulömpum lofa góðu“, Náttúran.is: 15. febrúar 2010 URL: http://nature.is/d/2010/02/15/profanir-led-ljosdiooulompum-lofa-goou/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 4. nóvember 2010

Skilaboð: