Síðustu verk fráfarandi umhverfisráðherra í þágu náttúrunnar
Sigríður Anna Þórðardóttir gekk frá ýmsum mikilvægum málum í gær, en eins og kunnugt er tekur ný r umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz við starfi umhverfisráðherra í dag. Meðal síðustu embættisverka Sigríðar Önnu var að friða blesgæsina og kúluskít, sérstakt afbrigði græný örungsins vatnaskúfs. Sjá frétt á vef umhverfisráðuneytisins. Einnig ákvað ráðherra í gær að styrkja verkefnið Náttúran.is/Nature.is enda séu markmið vefsetursins í fullu samræmi við sjálfbærnismarkmið stjórnvalda og verkefnið auk þess áhugaverð og tímabær nýjung.
Myndin til hægri er af kúluskít og sú til vinstri af blesgæs.Birt:
15. júní 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Síðustu verk fráfarandi umhverfisráðherra í þágu náttúrunnar“, Náttúran.is: 15. júní 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/fraf_umhverfradhe/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 4. maí 2007