Ráðstefna – Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða
Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða verður haldið 16. og 17. nóvember n.k. á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði. Á vinnuþinginu munu Vatnavinir kynna frumlegar hugmyndir og skissur af baðstöðum Vatnavina Vestfjarða sem og annað frumkvöðlastarf og ýmsar pælingar. Þarna mættir breiður hópur fulltrúa fyrirtækja í ferðaþjónustu og sérfræðingar tengdir heilbrigðum lífsstíl.
Ráðstefnan er opin öllum og við hvetjum hagsmunaaðila til að mæta, en eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok fimmtudagsins 12. nóvember.
Sjá dagskrána hér að neðan:
Hefst kl. 11:00-12:00.
- Vatnavinir Vestfjarða, Sigrún Birgisdóttir og Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Hughrifagreining fyrir markaðsetningu: Sköpun sérstöðu, Sigrún Birgisdóttir og Sigurður Þorsteinsson
- Opnun Vefsíðu www.vatnavinir.is, María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir
Hádegismatur
Kl. 13:00-15:45
- Baðstaðir Vatnavina Vestfjarða: Kynning á hugmyndavinnu, Olga Guðrún Sigfúsdóttir og Sigrún Birgisdóttir
Kaffi og meðlæti
Kl. 16:00-18:00
- Óhefðbundnar lækningar við baðstaði Vatnavina, Náttúrulækningafélag Íslands
- Jurtir og vatn, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Villimey
- Þari, vatn og lækningamáttur, Sólrún Sverrisdóttir, Reykhólum
- Ferðaþjónustan á Klængshóli í Skíðadal: Náttúra og heilsa, Anna Dóra Hermannsdóttir
Samræður
- Þemaferðir á Vestfjörðum: Arnlín Óladóttir og Magnús Rafnsson, Þemaferðir ehf
- Gerð og markaðsetning ferða, Bertrand Jouanne, Ferðakompaníið
- Námskeið og ferðir í tengslum við baðstaði Vestfjarða, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir
- Ferðamálastofa og Vatnavinir Vestfjarða, Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri
Samræður
Kl. 18:00-19:00 Gleiðstund og samræður með léttum veitingum
Kvöldmatur og gisting á Hótel Laugarhóli
Þriðjudagurinn 17. nóvember:
Kl. 09:00-12:00
- Eiginleikar vatns á Vestfjörðum og nýjar leiðir við hreinsun vatns, Sandra Grettisdóttir, Háskólanum Akureyri
- Útflutningsráð og Vatnavinir Vestfjarða, Hermann Ottósson, forstöðumaður
- Markaðstofa Vestfjarða og Vatnavinir Vestfjarða, Jón Páll Hreinsson
- Vatnavextir og tekjumyndun, Anna G. Sverrisdóttir
- Ímyndarsköpun, Sigurður Þorsteinsson og Anna G. Sverrisdóttir
Samræður
Kl. 12:00-13:00 Hádegismatur
- Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS, Hildur Björk Pálsdóttir
- Starfsemi Vatnavina Vestfjarða, Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Starfsemi Vatnavina, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir
Efniviður þingsins 60 mín: Samræður og vinna í hópum.
Kaffi og meðlæti.
Samráð Vatnavina Vestfjarða um hvernig áframhaldandi samstarfi verði háttað
Kl. 18.00.
Vinnuþingslit Vatnavina Vestfjarða
Ráðstefnugestir greiða ekkert þátttökugjald, en mikilvægt er að gestir bóki eftirfarandi samkvæmt þátttöku, annan eða báða dagana.
Dagur 1, án gistingu
Hádegismatur, kaffi og kvöldverður 4700 kr.
Dagur 2, án gistingu
Hádegismatur og miðdegiskaffi 2000 kr.
Gisting með morgunverði:
Einstaklingur (með baði) 7000 kr. á mann
Tveir í herb (með baði) 5000 kr á mann
Einstaklingur (án baðs) 6000 kr á mann
Tveir í herb (án baðs) 4000 kr á mann
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Viktoríu Rán í síma 451 0077 / gsm 691 4131.
Skráningar má hringja inn eða senda í tölvuposti á viktoria@atvest.is sjá meðfylgjandi skráningarskjal.
Vinsamlegast tilkynnið forföll sem fyrst.
Birt:
Tilvitnun:
Viktoría Rán Ólafsdóttir „Ráðstefna – Vinnuþing Vatnavina Vestfjarða“, Náttúran.is: 10. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/10/raostefna-vinnuthing-vatnavina-vestfjaroa/ [Skoðað:29. mars 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 15. nóvember 2009