Röggvarfeldurinn, flík og ábreiða, í fortíð og nútíð.
Þriðjudaginn 27. mars mun Hildur Hákonardóttir halda fyrirlestur um Röggvarfeldinn í hádegiserindi í Þjóðminjasafni Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni „Fræðslufyrirlestrar Þjóðminjasafns Íslands“. Hildur mun í fyrirlestri sínum fjalla um röggvarfeldinn sem var í senn flík og ábreiða. Hún rekur upphaf feldarins, blómatíð og afdrif, en hann er ein af grunngerðum fatnaðar og því lífseigur og má enn finna afleiddar gerðir hans í nokkrum löndum. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hildur Hákonardóttir lærði myndvefnað við Myndlista- og handíðaskólann og í Listaskóla Edinborgar. Hún stundaði listvefnað og kennslu á árunum 1969 til 1980 við Handíðaskólann og var skólastjóri hans á árunum 1975-1978 og stofnaði þá hina umdeildu Nýlistadeild og einnig málaradeild.
Árið 1980 flutti hún austur í Ölfus og var forstöðumaður Byggða- og listasafns Árnesinga um áratuga skeið. Bifreiðaslys olli því að hún sneri sér að ritstörfum og hefur hún gefið út bækur um sjálfsþurft og garðyrkju - Ætigarðinn og Blálandsdrottninguna - og einnig bók um kvennafrídaginn árið 1975 með eigin myndskreytingum.
Hildur hefur á síðustu árum látið gamlan draum rætast, að kynna sér kljásteinavefstaðinn forna og vefa röggvarfeld með hjálp innlendra og erlendra vefara. Áhugi á kljásteinavefstaðnum hefur aukist í mörgum löndum undanfarið samfara því að konur hafa snúið sér í auknum mæli að rannsóknum á fornum vefnaði.
Fjöldi greina eftir Hildi birtast reglulega hér á vefnum. Smelltu hér til að sjá 177 greinar eftir HIldi hér á vefnum.
Ljósmynd: Hildur Hákonardóttir með röggvarfeld um sig.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Röggvarfeldurinn, flík og ábreiða, í fortíð og nútíð.“, Náttúran.is: 26. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/26/roggvarfeldurinn-flik-og-abreida-i-fortid-og-nutid/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.