Í ný legri frétt á vef Umhverfisstofunar er mengun og heilsuáhættuþættir af völdum grillunar og útiofna teknir fyrir. Þrátt fyrir að flestum finnist það ákaflega huggulegt og góð fjölskylduskemmtun að grilla úti og arna okkur við eldinn er það ekki að sama skapi jákvætt í alla staði.
Í fréttinni segir:

 

Í góðviðri eins og hefur verið í sumar er fólk meira útivið í garðinum. Ýmislegt sem við gerum heimavið getur skapað mikla loftmengun í garðinum eða næsta nágrenni hans. Fyrst er að nefna grillið. Kolagrill valda margfalt meiri mengun heldur en gasgrill.
Bruni í gasgrillum er mjög hreinn og frá þeim kemur nær eingöngu koldíoxíð (CO2) sem er gróðurhúsalofttegund en skaðlaus fólki en frá kolagrillum kemur mikið sót. Frá kolagrillum kemur að auki kolmónoxíð (CO) sem er eitruð lofttegund, mikið sót sem er í raun fíngert og skaðlegt svifryk og einnig brennisteinssambönd sem erta lungu og jafnvel ýmis krabbameinsvaldandi efnasambönd. Gasgrill eru því mun umhverfisvænni kostur. Þótt þau séu dýrari í innkaupum þá eru þau mun ódýrari í rekstri ef mikið er grillað.

Útiofnar hafa verið vinsælir undanfarin ár. Notkun þeirra getur skapað talsverða loftmengun í nágrenninu. Eingöngu skal brenna í þessum ofnum þurran við. Viður sem ekki er vel þurrkaður veldur ófullkomnum bruna, meiri sótmyndun og myndun skaðlegra efnasambanda. Ekki skal brenna máluðu eða fúavörði timbri því í hvoru tveggja eru rotvarnarefni og klór sem auðveldlega geta myndað díoxín við bruna. Allt sorp og plastefni valda einnig mikilli mengun þegar þau brenna. Við bruna pappírs myndast mikil aska og því skyldi eingöngu nota hann við að koma eldinum af stað. En jafnvel þótt öllum reglum sé fylgt og aðeins notaður þurr viður þá fylgir þessum ofnum mikil sótmengun. Ef menn vilja fá varma á pallinn á síðkvöldum þá skapa gashitarar mun minni mengun en sú aðferð sem skapar minnstu loftmengun er geislahitun með rafmagni.

Sjá nánar á vef Umhverfisstofnunar.

Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
5. ágúst 2007
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Grill og loftmengun - Umhverfisstofnun“, Náttúran.is: 5. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/05/grill-og-mengun/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: