Grill og loftmengun - Umhverfisstofnun
Í ný legri frétt á vef Umhverfisstofunar er mengun og heilsuáhættuþættir af völdum grillunar og útiofna teknir fyrir. Þrátt fyrir að flestum finnist það ákaflega huggulegt og góð fjölskylduskemmtun að grilla úti og arna okkur við eldinn er það ekki að sama skapi jákvætt í alla staði.
Í fréttinni segir:
Í góðviðri eins og hefur verið í sumar er fólk meira útivið í garðinum. Ýmislegt sem við gerum heimavið getur skapað mikla loftmengun í garðinum eða næsta nágrenni hans. Fyrst er að nefna grillið. Kolagrill valda margfalt meiri mengun heldur en gasgrill.
Bruni í gasgrillum er mjög hreinn og frá þeim kemur nær eingöngu koldíoxíð (CO2) sem er gróðurhúsalofttegund en skaðlaus fólki en frá kolagrillum kemur mikið sót. Frá kolagrillum kemur að auki kolmónoxíð (CO) sem er eitruð lofttegund, mikið sót sem er í raun fíngert og skaðlegt svifryk og einnig brennisteinssambönd sem erta lungu og jafnvel ýmis krabbameinsvaldandi efnasambönd. Gasgrill eru því mun umhverfisvænni kostur. Þótt þau séu dýrari í innkaupum þá eru þau mun ódýrari í rekstri ef mikið er grillað.
Sjá nánar á vef Umhverfisstofnunar.
Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Grill og loftmengun - Umhverfisstofnun“, Náttúran.is: 5. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/05/grill-og-mengun/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.