Nú um helgina, dagana 21.-22. maí, verður ferðasýningin Íslandsperlur haldin í Perlunni. Sýningin er öllum opin og stendur báða dagana frá kl. 10:00-18:00. Þar gefst gestum tækifæri á að kynna sér fjölbreytta ferðamöguleika á Íslandi, skoða, spjalla og spyrja, bragða á íslenskum krásum og njóta alls kyns uppákoma. Að Íslandsperlum standa markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta bænda, Opinn landbúnaður og Beint frá býli.

Sýningargestum verður boðið að ganga hringinn í kringum landið og fá smjörþefinn af því besta sem ferðalöngum stendur til boða í sumar. Auk þess býðst öllum að taka þátt í skemmtilegri ferðagetraun þar sem svörin við spurningunum leynast á sýningunni. Getraunin á eftir að reynast einhverjum gestum happadrjúg því í boði eru veglegir ferðavinningar.

Á Íslandsperlum í ár beinum við athyglinni að vatni í öllum sínum myndum; ánum, lækjunum, jöklunum, skíðasvæðunum, sundlaugunum og sjónum umhverfis landið verður gert hátt undir höfði á sýningunni. Fossar falla niður veggi og brúað verður yfir læki sem liðast á milli landshluta þar sem ferðaþjónustuaðilarkynna spennandi möguleika og nýjungar fyrir komandi ferðasumar.

Hvort sem fólk hefur áhuga á fugla-, sela-, eða hvalaskoðun, gönguferðum um fjall eða fjöru, skella sér á söfn eða í sundlaugar, njóta menningar og lista, stunda stangveiði eða sjóböð, slappa af í heilsulindum eða dvelja í blómlegum bæjum landsins þá finna allir örugglega eitthvað sem heillar á Íslandsperlum.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

Birt:
20. maí 2011
Tilvitnun:
Kristín Þorleifsdóttir „Ferðasýningin Íslandsperlur í Perlunni“, Náttúran.is: 20. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/20/ferdasyningin-islandsperlur-i-perlunni/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. október 2011

Skilaboð: