Umbúðalaus umræða - málþing
Umbúðalaus umræða, málþing um neyslu og úrgangsmál verður haldið á Hótel Sögu, Sunnusal, föstudaginn 20. nóvember frá kl. 10:00-16:00.
Markmið ráðstefnunnar er að vekja umræðu um stöðu neyslumenningar og úrgangsmála hérlendis, hvetja til hraðari innleiðingu vistvænni leiða í vöruhönnun og úrgangsmálum og skapa vettvang fyrir samvinnu milli ólíkra aðila er tengjast þessum málaflokkum.
Að þessari ráðstefnu standa Félag umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ) og Fagráð um endurnýtingu og úrgang (FENÚR).
Dagskrá:
10:00 Skráning
10:30 Setning, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður FUMÍ
Ávarp, Svandís Svavarsdóttir, Umhverfisráðherra
11:00 Áhrif neyslusamfélags á sjálfsmynd og vellíðan,
Dr. Ragna B. Garðarsdóttir, Félagsvísindastofnun HÍ
11:20 Ábyrgð í neyslusamfélagi, Sóley Þórisdóttir, vöruhönnuður
11:35 Neysla og þróun hennar, Lára Guðlaug Jónasdóttir, Hagstofunni
11:50 Umræður
12:15 Hádegisverður
13:15 Fremst þjóða í hófsemd, Gunnar Hersveinn, rithöfundur
13:30 Í upphafi skyldi endinn skoða, Finnur Sveinsson, Fisv-ráðgjöf
13:45 Vistferilhugsun við hönnun og innkaup, Eva Yngvadóttir, Eflu
14:00 Umbúðir og fleira til endurvinnslu, misleitt efni – einsleitt efni
Elías Ólafsson, Gámaþjónustunni
14:15 Umræður
14:35 Kaffihlé
14:50 Umbúðir hjá MS, Björn S. Gunnarsson, Mjólkursamsölunni
15:05 Umbúðasöfnun og úrvinnslusjóður, Íris Gunnarsdóttir, Úrvinnslusjóði
15.20 Lög og reglur - horft fram á veginn, Kjartan Ingvarsson, Umhverfisstofnun
15:35 Umræður
15:50 Ráðstefnuslit, Ragna I. Halldórsdóttir, formaður FENÚR
Fundarstjóri: Freyr Eyjólfsson
Ráðstefnugjald er 3000 kr. Nemar fá frítt gegn framvísun skólaskírteinis. Boðið verður upp á hádegisverð á 2000 kr. Vinsamlegast skráið þátttöku á ráðstefnuna og í hádegisverð á netfangið ragna.halldorsdottir@sorpa.is fyrir 17. nóvember.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Umbúðalaus umræða - málþing“, Náttúran.is: 11. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/11/umbuoalaus-umraeoa-malthing/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.