Aðgerðabúðir Saving Iceland á Hellisheiði
Í ár eru í búðunum aktívistar frá Íslandi, Ástralíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Danmörku, Englandi, Hollandi, Frakklandi, Belgíu og Ítalíu og fleiri löndum, sem hafa ákveðið að ganga til liðs við baráttuna. Upplýsingar um eyðileggingu íslenska öræfa hafa borist víða.
Í ár mun baráttan, auk umhverfisverndarsjónarmiða, snúast að miklu leiti um mannleg áhrif álframleiðslu; frá menningarlegum þjóðarmorðum í kjölfar báxítgraftar á Indlandi, Suður-Ameríku, Jamaíka og annars staðar í heiminum, til beinna tengsla áliðnaðarins við hergagnaframleiðslu og stríðsrekstur. (1)
Alþjóðleg samstöðuvika með baráttu Saving Iceland mun eiga sér stað í Evrópu frá 21. - 27. Júlí. Einnig stendur Saving Iceland fyrir ráðstefnu í Reykjavíkur Akademíunni þann 24. Júlí, þar sem Samarendra Das, virtur indverskur rithöfundur og aktívisti mun ásamt Andra Snæ Magnasyni og fleirum, brjóta á bak aftur mþtuna um svokallaða ‘græna álframleiðslu’ og fjalla um áhrif álframleiðslu á þriðja heiminn. Fyrirlesturinn verður auglýstur betur síðar auk upplýsinga um fleiri fyrirlestra sem Samarendra mun halda annars staðar á landinu.
Að lokum höfum við komið upp nýrri og betri heimasíðu, sem nú inniheldur mikinn fjölda greina, frétta og upplýsinga á íslensku. Nýja vefsíðan er á sömu gömlu slóðinni: www.savingiceland.org
Hafið endilega samband fyrir nánari upplýsingar:
Upplýsingar:
Miriam Rose, 869 3782
Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, 857 3521
Jaap Krater, 867 1493
Netfang: savingiceland@riseup.net
Hellisheiðavirkjun. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Saving Iceland „Aðgerðabúðir Saving Iceland á Hellisheiði“, Náttúran.is: 12. júlí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/07/12/fjorou-aogeroabuoir-saving-iceland-hellisheioi/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.