Freigátufuglar aftur á Ascension eftir 150 ára fjarveru
 Á dögunum fundust tvö hreiður freigátufugla á Ascension-eyjunni í  sunnanverðu Atlantshafi, en u.þ.b. 150 ár eru liðin síðan villikettir  útrýmdu síðustu ungum tegundarinnar á eyjunni. Freigátufuglar eru í hópu  sjaldgæfustu sjófugla heims og því þykja þetta mikil tíðindi. Endurkoma  fuglanna er árangur margra ára átaks til að útrýma villiköttum á  Ascension. Köttunum var upphaflega sleppt á eyjunni í kringum aldamótin  1800 til að koma í veg fyrir að rottur fjölguðu sér óhóflega. Rotturnar  höfðu borist þangað vegna gáleysis manna og voru farnar að ógna  fuglastofnum. Raunin varð sú að kettirnir gengu í lið með rottunum í  ungaátinu og síðan þá hafa fuglar átt mjög undir högg að sækja á þessum  slóðum.

 (Sjá frétt The Guardian 8. desember).
Ljósmynd: Freigátufugl í tilhugalífinu, E. Kindler.
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Freigátufuglar aftur á Ascension eftir 150 ára fjarveru“, Náttúran.is: 10. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/10/freigatufuglar-aftur-ascension-eftir-150-ara-fjarv/ [Skoðað:31. október 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.