Umhverfisþing 21011
Umhverfisþing verður haldið þ. 14. október nk. á Hótel Selfossi. Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál, þar á meðal nýútkomna hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd.
Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár.
Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar er að finna á vef umhverfisráðuneytisins.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í þinginu. Skráning fer fram á www.umhverfisraduneyti.is eða í síma 545 8600.
Drög að dagsrkrá umhverfisþingsins:
08:15 - 09:00 Skráning þinggesta
09:15 - 10:15 Þingsetning
Ávörp
- Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
- Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Danmarks Naturfredningsforening
- Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi í Árborg og formaður Sambands sunnlenskra sveitarfélaga
- Guðmundur Páll Ólafsson, líffræðingur og rithöfundur
- Fulltrúi ungmenna
Kaffihlé
10:45 - 13:00 Kynning á hvítbók um náttúruvernd
- Aagot V. Óskarsdóttir, lögfræðingur og starfsmaður nefndar um endurskoðun náttúruverndarlaga
- Umræður um hvítbók í heimskaffi, stjórnandi Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Matarhlé
14:00 - 16:30 Málstofur
A. Friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar
Málstofustjórar:
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Reykjavík
Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs hjá Landsvirkjun
- Kynning á hvítbók um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
- Yfirskrift birt síðar Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri Hörgárbyggðar
- Sjónarmið landeigenda Ragnhildur Helga Jónsdóttir, sauðfjárbóndi Ausu Andakíl
- Fulltrúi umhverfisverndarsamtaka NN
B. Náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd
Málstofustjórar:
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkur
Kristín Svavarsdóttir, sérfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins
- Kynning á hvítbók um vísindalegan grunn og viðmið fyrir náttúruvernd Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúruverndarstofnunar Íslands
- Landslag og víðerni Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
- Endurheimt vistkerfa Guðmundur Halldórsson, rannsóknastjóri hjá Landgræðslu ríkisins
- Vernd jarðminja Lovísa Ásbjörnsdóttir, Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson, jarðfræðingar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
C. Útivist, ferðaþjónusta og náttúruvernd
Málstofustjórar:
Anna Gunnhildur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Laugarvatn Fontana
Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála Höfuðborgarstofu
- Almannaréttur og útivist Katrín Theodórsdóttir, lögfræðingur
- Náttúruvernd sem undirstaða ferðaþjónustu Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Háskóla Íslands
- Þolmörk ferðamannastaða/álagsstýring Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
- Náttúra og útivist – andleg og líkamleg næring Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur og fararstjóri
D. Málstofa ungmenna
16:30 - 17:00 Samantekt og þingslit
Síðdegishressing í boði umhverfisráðherra
Nánari upplýsingar og skráning á vef umhverfisráðuneytisins.
Ljósmynd: Hvítsmári, Guðrún A. Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Umhverfisþing 21011“, Náttúran.is: 3. október 2011 URL: http://nature.is/d/2011/10/03/umhverfisthing-21011/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.