Kartöflueggjakaka er ágæt þegar nokkrar kartöflur hafa gengið af, ef þær eru nægilega bragðgóðar.

Kartöflurnar eru skornar niður og settar á pönnu með söxuðum lauk, salti og pipar og brúnað létt þangað til laukurinn er meyr. 3–4 eggjum er slegið saman með 2 msk af mjólk. Þessu hellt yfir kartöflurnar og hitað þangað til eggin eru hlaupin og hrært varlega í ef þarf. Skreytt með fersku, grænu kryddi eftir smekk.

Úr „Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar“  eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Ljósmynd: Nýuppteknar og hreinsaðar Premium kartöflur, ljósm. Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
28. september 2011
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Kartöflueggjakaka“, Náttúran.is: 28. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/20/kartoflueggjakaka/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. september 2011
breytt: 28. september 2011

Skilaboð: