Soðnar kartöflubollur eru kallaðar kartoffelkloesse á þýsku, dumplings á ensku, gnocchi á ítölsku. Hér er grunnuppskrift að þessum rétti en tilbrigðin eru töluvert mismunandi frá einu landi til annars, bæði varðandi innihald og suðuaðferð, og hver fjölskylda hefur sínar hefðir. Takið 3–4 stórar, mjölmiklar kartöflur og sjóðið. Músið kartöflurnar og hrærið í einu eggi, 1⁄2 bolla af hveiti eða spelti, svolitlu af múskati, salti og 3 msk af bráðnu smjöri eða góðri olíu. Gerið úr þessu fallegar, ekki of stórar, bollur og veltið upp úr hveiti. Setjið í stóran pott af sjóðandi vatni og bíðið uns bollurnar rísa upp á yfirborðið. Það tekur um 10 mínútur. Sjóðið ekki svo margar í einu að þær klessist saman. Ef þær leysast í sundur hefur ekki verið hnoðað í þær nægilega miklu hveiti. Berið fram með smjöri eða sósum.

Úr „Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar“  eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Ljósmynd: Nýuppteknar og hreinsaðar Premium kartöflur, ljósm. Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
26. september 2013
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Kartöflubollur soðnar í vatni“, Náttúran.is: 26. september 2013 URL: http://nature.is/d/2011/09/20/kartoflubollur-sodnar-i-vatni/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. september 2011
breytt: 1. janúar 2013

Skilaboð: