Óskar eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2011
Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna  fyrir árið 2011. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995  og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða  fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og  framtíðarskipulagi.
Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.
Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?
Allir  þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna  markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra  og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða  félagasamtök.
Tilnefningar sendist á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík, merktar Umhverfisverðlaun eða með tölvupósti á umhverfisstjóra stofnunarinnar, Svein Rúnar Traustason, á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 14. október næstkomandi.
Skjal til útfyllingar
Hér að neðan er skjal með spurningum og atriðum sem þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónustuaðilar eru tilnefndir.
- Skjal til útfyllingar vegna umhverfisverðlauna (Word-skjal)
 - Nánari upplýsingar og listi yfir fyrri verðlaunahafa.
 
Ljósmynd: Sogamelar, ljósm. Árni Tryggvason.
Birt:
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Óskar eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2011“, Náttúran.is: 16. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/15/oskar-eftir-tilnefningum-til-umhverfisverdlauna-fe/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. september 2011
breytt: 16. september 2011
		
