Skógræktarfélag Íslands útnefndi tré ársins 2011 við hátíðlega athöfn að Greniteigi 9 í Reykjanesbæ þriðjudaginn 13. september. Tré ársins er af tegundinni fjallagullregn (Laburnum alpinum) og gerir sérstaða þess og fegurð það vert útnefningar. Þetta er í fyrsta skipti sem tré á Suðurnesjum verður fyrir valinu en þetta tiltekna tré þykir fyrirtaks dæmi um hvernig trjágróður getur vaxið og dafnað suður með sjó þrátt fyrir erfið skilyrði.

Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, flutti ávarp og veitti Sigrúnu Guðjónsdóttur, eiganda trésins, viðurkenningu. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, flutti einnig ávarp af þessu tilefni.

Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega Tré ársins. Er útnefningunni ætlað að beina sjónum almennings að því gróskumikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa um allt land.

Ljósmynd: Tré ársins, fjallagullregn í Reykjanesbæ, ljósm. Sigurður Bjarnason.

Birt:
13. september 2011
Höfundur:
Einar Örn Jónsson
Tilvitnun:
Einar Örn Jónsson „Tré ársins 2011“, Náttúran.is: 13. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/13/tre-arsins-2011/ [Skoðað:22. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: