Fullgilding Árósarsamningsins í höfn
Náttúruverndarsamtök Íslands fagna því að í dag hefur á Alþingi náðst samkomulag um fullgildingu Árósasamningsins.
Grundvallaratriði Árósasamningsins eru:
- Aðgengi almennings að upplýsingum um umhverfismál
- Aðgengi almennings að ákvarðanatöku um umhverfismál
- Aðgengi almennings að dómskerfinu til að fá skorið úr málum er varða ákvarðantöku um umhverfismál
Þessi grundvallaratriði byggja á 10. grundvallaratriði Ríó-yfirlýsingarinnar um nauðsyn þátttöku almennings í ákvarðanatöku um umhverfismál.
Árósasamningurinn tók gildi 30. október 2001 þegar 30 ríki höfðu fullgilt hann. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa allt frá undirritun samningsins barist fyrir að ákvæði hans verði innleidd í lög.
Birt:
6. september 2011
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Íslands „Fullgilding Árósarsamningsins í höfn“, Náttúran.is: 6. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/06/fullgilding-arosarsamningsin-i-hofn/ [Skoðað:3. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 7. september 2011