Krafist fullgildrar hjólreiðabrautar meðfram Miklubraut
Stjórnarfundur Landssamtaka hjólreiðamanna, haldinn 3. júlí 2008 ályktar:
Mikilvægt er að leggja greiðar og fullgildar hjólreiðabrautir meðfram stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu, aðgreindar frá gangstéttum og akbrautum.
Landssamtök hjólreiðamanna harma að ekki skuli vera gert ráð fyrir hjólreiðabraut með aðgreindum stefnum í tengslum við lagningu forgangsakreinar á Miklubraut, sem nú er í vinnslu. Sú hljóðmön sem mokað hefur verið upp samfara þessari framkvæmd mun klárlega þrengja að þeim gangstíg sem fyrir er.
Samtökin hvetja Reykjavíkurborg og Vegagerðina til að bregðast skjótt við og leggja fullgilda aðgreinda hjólreiðabraut meðfram Miklubraut. Ef jafnræði á að ríkja milli samgöngumáta er mikilvægt að framvegis verði hugað að slíku við lagningu akbrauta.
Birt:
Tilvitnun:
Morten Lange „Krafist fullgildrar hjólreiðabrautar meðfram Miklubraut“, Náttúran.is: 4. júlí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/07/04/landsamband-hjolreioamanna/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 5. júlí 2008