Í fréttatilkynningu frá samtökunum Saving Iceland segir:

Í dag heimsótti trúðarher Saving Iceland höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1. Stuttu seinna fóru nokkrir mótmælendur upp á þak hússins þar sem þeir komu fyrir fána sem á stóð Vopnaveita Reykjavíkur?. Saving Iceland krefst þess að O.R. stöðvi orkusölu til álfyrirtækjanna Century-RUSAL og ALCAN-Rio Tinto, en 30% framleidds áls fer til hernaðar- og vopnaframleiðslu (1).


Í morgun var ræðismannsskrifstofu Íslands í Edinborg lokað, þegar lásar voru límdir og rauðri málningu var hent á húsið með yfirskriftinni “Íslandi blæðir”. Á Miðvikudag lokaði Saving Iceland veginum að álveri Century á Grundartanga.


Sem stendur er O.R. að stækka jarðvarmavirkjun sína við Hengil á Hellisheiði. Í umhverfismati vegna stækkunarinnar kemur fram að markmið stækkunnarinnar sé að koma til móts við kröfur stóriðjufyrirtækja með aukinni raforkuframleiðslu. Orkan sé aðallega ætluð stækkuðu álveri Century á Grundartanga og mögulega stækkuðu álveri ALCAN í Hafnarfirði og nýju álveri Century í Helguvík (2,3).

Stækkun álversins í Straumsvík hefur þegar verið hafnað í atkvæðagreiðslu og aðrar álversframkvæmdir á suðvestur horninu hafa ekki verið staðfestar. Sitjandi ríkisstjórn Íslands segist mæla gegn frekari álversframkvæmdum en samt sem áður er stækkun Hellisheiðarvirkjunnar í fullum gangi, verkefni sem mun kosta 379.06 milljónir dollara (2). Íslenska þjóðin hefur enn á ný verið blekkt. Þegar stækkuninni er lokið, verður fleiri álverum troðið upp á Íslendinga. Rafmagnið verður að selja til þess að borga upp lánin fyrir framkvæmdunum. Á sama tíma borga garðyrkjubændur tvisvar sinnum hærra gjald fyrir rafmagn en Century greiðir (4).

“Stór hluti framleidds áls fer beint til hernaðarstarfsemi Bandaríkjanna, Rússlands og annara landa. Ál er mikilvægasti undirstöðumálmur nútíma hernaðar, til framleiðslu t.d. skotvopna, skriðdreka, orrustuflugvéla og kjarnorkuvopna (5). Það er eins og hér á landi sé í gangi keppni um hvert af eftirfarandi fyrirtækum – ALCOA, ALCAN-Rio Tinto eða Century-RUSAL – hafi framið flest og stærst mannréttindabrot og umhverfisglæpi. Verðlaunin er ódýr íslensk orka. Enginn þessara böðla ætti að fá orku frá O.R.” segir Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland.

Century er undirfyrirtæki Glencore, sem er þekkt fyrir vafasama samninga sína í tengslum við aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku, Sovétríkin og Írak undir stjórn Saddams Hussein (6,7). Glencore hefur sameinast RUSAL (8), sem gerir fyrirtækið að stærsta álfyrirtæki í heiminum. RUSAL, sem sér rússneska hernum fyrir áli, tekur á beinan hátt þátt í stríðinu í Tjetsetníu, með framleiðslu á sprengjum og skotvopnum úr áli. Að minnsta kosti 35 þúsund óbreyttir borgarar hafa látið lífið vegna þeirra átaka (9,10). Wayuu indjánar og bændur í Kólumbíu voru nýlega stráfelldir vegna námustækkanna Glencore (11).

Umhverfisáhrif Hellisheiðarvirkjunnar.

Stækkun Hellisheiðarvirkjunnar er langt í frá eins umhverfisvæn og O.R. heldur fram. Heitu og eitruðu, afgangsvatni er annað hvort dælt aftur í borholurnar (líkt og á Nesjavöllum), sem eykur líkur á jarðskjálftum á þessu virka svæði. Eða því er veitt í læki og vötn, en það kann að gjöreyða mikilvægum vistkerfum.

Norðurhluti Þingvallavatns er þegar líffræðilega dauður vegna samskonar framkvæmda og kallar það á að vatnið verði verndað strax. Ferðamannaiðnaður mun einnig skaðast á framkvæmdunum því röskun á neðanjarðarflæði leiðir til breytinga á hreyfingu grunnvatns. Það hefur í oft för með sér uppþornun heitra hvera og mengun yfirborðsvatns. (12,13)

Fjórar fuglategundir af válista Náttúrufræðistofnunnar Íslands verða fyrir neikvæðum áhrifum; fálki, grágæs, straumönd og hrafn (14).

Nánari upplýsingar:
http://www.savingiceland.org
Phone: Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, (+354) 8480373.

Heimildir:

1. Bauxite and Aluminous Laterite. (2nd edition), London: Technical Press.
R. Graham, 1982, p. 250.
2. European Investment Bank, http://www.eib.org/projects/pipeline/2007/20070057.htm
3. VGK, Environmental Impact Assesment fot Helisheidarvirkjun, http://www.vgk.is/hs/Skjol/UES/SH_matsskyrsla.pdf, page 2 and other pages.
4. Iceland Review, June 7th, 20007, http://www.savingiceland.org/node/821.
5.. S. Das & F. Padel, “Double Death - Aluminium’s Links with Genocide”, Economic and Political Weekly, Dec. 2005, also available at http://www.savingiceland.org/doubledeath
6. Peter Koenig. "Secretive Swiss trader links City to Iraq oil scam", The Sunday Times, September 25, 2005.
7. Stephen Long. "Swiss link undermines Xstrata's bid for WMC", ABC Radio, February 11, 2005.
8. UC RUSAL, http://www.aluminiumleader.com/index.php?&lang=eng
9. Amnesty International, “What Justice for Chechnya’s disappeared?”, May 23rd 2007.
10. “Tens of thousands” were killed in the first Tchechen war, “25.000” in the second (since 1999). “Many of these were killed during the aerial bombardments of towns and villages in the first months of the conflict”.
11. Frank Garbely, Mauro Losa. "Paradis fiscal, enfer social", Télévision Suisse Romande, 29 June 2006.
12. Kristmannsdóttir, H, and Armannsson. H, 2003. ‘Environmental aspects of geothermal energy utilization.’ in Geothermics vol.32, p.451-461.
13. Rybach, L, 2003. ‘Geothermal energy: sustainability and the environment.’ Geothermics. vol.32, p.463-470.
14. Idem 3, p.24.
Birt:
20. júlí 2007
Höfundur:
Saving Iceland
Tilvitnun:
Saving Iceland „Stöðvið orkuframleiðslu fyrir stríð - Saving Iceland“, Náttúran.is: 20. júlí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/07/20/stvi-orkuframleislu-fyrir-str-saving-iceland/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 21. júlí 2007

Skilaboð: