Opinn fundur um Vatnajökulsþjóðgarð og atvinnutækifæri
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs og þjóðgarðsvörður á vestursvæði auglýsa opna svæðisfundi um þjóðgarðinn og atvinnutækifæri tengd honum.
Á fundinum verða fimm stutt ávörp og umræður á eftir. Fundirnir verða haldnir fimmtudaginn 14. apríl, á Laugalandi í Holtum kl. 16–18 og á Hótel Klaustri kl. 20:30–22:30.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
- Ávarp, Elín Heiða Valsdóttir, formaður svæðisráðs
- Uppbygging þjóðgarðsins á vestursvæði, Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður
- Tækifæri í Vatnajökulsþjóðgarði, Rósa Björk Halldórsdóttir, varaformaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs
- Stuðningur við atvinnuuppbyggingu, Hulda Eggertsdóttir, Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands
- Þjóðgarðurinn í augum heimamanns, Friðrik Pálsson, hótelstjóri Hótel Rangá
- Umræður.
Ljósmynd: Frá Skaftafelli, ljósm. Árni Tryggvason.
Birt:
12. apríl 2011
Tilvitnun:
Snorri Baldursson „Opinn fundur um Vatnajökulsþjóðgarð og atvinnutækifæri “, Náttúran.is: 12. apríl 2011 URL: http://nature.is/d/2011/04/12/opinn-fundur-um-vatnajokulsthjodgard-og-atvinnutae/ [Skoðað:23. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.