Á aðalfundi Greenpeace Nordic sem haldinn var í Stokkhólmi um helgina 26.-27. maí var Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands endurkjörinn í stjórn samtakanna til næstu þriggja ára.

Stjórn Greenpeace Nordic mótar stefnu í samræmi við stefnu Greenpeace International og er ábyrg fyrir fjármálum samtakanna en daglegur rekstur er í höndum framkvæmdastjóra. Stuðningsmenn Greenpeace Nordic voru á síðasta ári 137 þúsund manns í Finnlandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Tekjur voru ríflega 85 milljónir sænskar kr. Þar af fóru 65 milljónir til baráttumála samtakanna.

Á þessu ári og næstu ár mun Greenpeace leggja mesta áherslu á loftslagsmál og verður 2/3 af fé samtakanna varið til þess málaflokks.
Birt:
6. maí 2008
Uppruni:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Árni Finnsson endurkjörinn í stjórn Greenpeace samtakanna“, Náttúran.is: 6. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/06/arni-finnsson-endurkjorinn-i-stjorn-greenpeace-sam/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. janúar 2011

Skilaboð: