Það er mikið ánægjuefni að hvalveiðar eru nú smámál, að mati forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, sbr. ummæli hans í Morgunblaðinu í dag og á Alþingi í gær. Þar sagði forsætisráðherra að "... Málið snýst eingöngu um hvaða mat fólk leggi á þetta mál gagnvart öðrum hagsmunum."

Mikið rétt! Spurningin er þá af hverju forsætisráðherra styður sjávarútvegsráðherra í slíku smámáli. Miklu fleiri hafa atvinnu af hvalaskoðun en nokkru sinni en geta fengið störf við hrefnuveiðar. Um 50 þúsund ferðamenn keyptu sér far hjá Eldingu í fyrra til að skoða hrefnur á Faxaflóa. Ferðaþjónusta er stórmál en hvalveiðar eru smámál; skipta engu fyrir þjóðarhag.

Af hverju gerir forsætisráðherra smámál að ásteytingarsteini í samskiptum Íslands við umheiminn?
Birt:
24. maí 2008
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Hvalveiðar eru smámál“, Náttúran.is: 24. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/24/hvalveioar-eru-smamal/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 25. maí 2008

Skilaboð: