Grigory Pasko á Íslandi

Málþingið er öllum opið og hefst það klukkan 8:30 að morgni þriðjudagsins 7.október og lýkur klukkan 10:30. Eru allir, félagar og aðrir, hvattir til að mæta.
Grigory Pasko hefur starfað sem blaðamaður í 25 ár og helgað skrif sín ástandi mannréttinda- og umhverfismála í Rússlandi. Á þessum tíma hefur hann upplifað miklar breytingar í kjölfar Perestrojku Gorbatsjovs og falls Sovétríkjanna, aukið frelsi fjölmiðla og síðan aftur hertar reglur í valdatíð Pútíns. Sjálfur þurfti hann að þola harða varðhalds og vinnubúðavistun til nokkurra ára í heimalandi sínu fyrir það eitt að nýta sér grundvallarmannréttindi til tjáningar.
Sjá frekar upplýsingar á vefsíðu Amnesty International, Íslandi.
Birt:
6. október 2008
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Íslands „Grigory Pasko á Íslandi“, Náttúran.is: 6. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/06/grigory-pasko-islandi/ [Skoðað:22. febrúar 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.