Kassi.is hefur ákveðið að hefja styrktaruppboð. Fyrsta styrktaruppboð verður haldið til stuðnings Ómari Ragnarssyni en hann vinnur að því að skapa sátt meðal þjóðarinnar um Kárahnjúkavirkjun. Það er að frumkvæði Jóhann G Jóhannssonar, tónlistar- og mynldistarmanns, sem þjóðhetjan Ómar Ragnarsson varð fyrir valinu sem fyrsta samstarfsverkefnið á þessu sviði en Jóhann hefur gefið olíumálverk sem boðið verður upp á kassi.is til stuðnings málefninu.

Myndin er af uppboðsverkinu: „Ofar jörðu“. Olía á striga, 110 cm x 82 cm. Jóhann G. Jóhannsson 2003.
-

Birt:
13. október 2006
Uppruni:
Ómar Ragnarsson
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Styrktaruppboð til handa Ómari Ragnarssyni“, Náttúran.is: 13. október 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/styrktaruppb_or/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 2. maí 2007

Skilaboð: