Viltu vita hvernig þú ekur?
Væntanlegt á markað er ný græja frá Griifin tækjaframleiðandanum. Um er að ræða lítið box sem sett er á tölvutengið í bílnum og skráir allskonar upplýsingar um aksturslag s.s. eyðslu og nýtingu. Einnig getur tækið þýtt bilanaskilaboð frá bíltölvunni og þannig einfaldað og jafnvel sparað í viðhaldi. Tækið skilar upplýsingunum til síma eða spjaldtölvu. Fyrst um sinn verður hugbúnaðurinn aðeins á iPhone, iPodTouch eða iPad en kemur fyrir Android seinna á árinu.
Upplýsingar um tækið má finna hér http://www.griffintechnology.com/products/cartrip
Birt:
Jan. 10, 2011
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Viltu vita hvernig þú ekur?“, Náttúran.is: Jan. 10, 2011 URL: http://nature.is/d/2011/01/10/viltu-vita-hvernig-thu-ekur/ [Skoðað:Dec. 9, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.