Prentsmiðjan Umslag hefur nú fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum.

Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar afhenti Sölva Sveinbjörnssyni, framkvæmdarstjóra prentsmiðjunnar Umslags ehf. vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins í húsnæði fyrirtækisins að Lágmúla 5. Allir starfsmenn prentsmiðjunnar Umslags ehf., ásamt fyrrum eiganda prentsmiðjunnar, voru viðstaddir afhendingu vottunarinnar þann 16. mars.

Umslag ehf. hefur lengi sinnt umhverfismálum vel og hlaut til að mynda Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2003 og stefnt lengi að Svansvottun. Kristín Linda Árnadóttir talaði um við afhendinguna að Umslag ehf. væri ekki eingöngu að hljóta hag af slíkri vottun heldur þjóðfélagið allt með auknu úrvali Svansvottaðrar vöru fyrir neytandann og um leið minna álagi á umhverfið. Prentsmiðjan Umslag ehf. er sjöunda prentsmiðjan á Íslandi til að hljóta Svansvottun og bætist því í ört stækkandi hóp Svansmerktra fyrirtækja, en þau eru nú orðin 18.

Sífellt aukinn áhugi er á Svansvottun fyrirtækja og hafa þónokkur fyrirtæki sótt um vottunina til Umhverfisstofnunar í ár. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum.

Sjá nánar um Svaninn hér.

Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Ljósmynd: Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar afhendir Sölva Sveinbjörnssyni, framkvæmdarstjóra prentsmiðjunnar Umslags ehf. vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins.

Birt:
19. mars 2012
Uppruni:
Umslag ehf
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fyrirtækið Umslag fær Svansvottun“, Náttúran.is: 19. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/19/fyrirtaekid-umslag-faer-svansvottun/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: