Sumarið hefur verið einstaklega gott og uppskeran úr matjurtagörðum Viðeyjar verður til sölu á sanngjörnu verði. Sjálfboðaliðar frá SEEDS samtökunum sjá um markaðinn og þar verður aðeins hægt að taka við krónum og aurum. Ágóðinn af sölunni verður notaður til áframhaldandi uppbyggingar á matjurtagörðum í Viðey. Bænastund verður í Viðeyjarkirkju kl.14:00 og skátar úr skátafélaginu Landnemum munu stjórna viðavangsleikjum fyrir alla fjölskylduna. Fyrir nokkru var kynnt uppskriftakeppnin Viðeyjarhnossgætið,- skemmtileg og einföld keppni sem allir geta tekið þátt í. Framlag til keppninnar má vera hvaðeina sem matgæðingar kunna að baka, elda eða blanda. Eina skilyrðið er, að í uppskriftinni sé að minnsta kosti eitthvað eitt sem vex í Viðey, rabbarbari, kúmen, hvönn, kartöflur eða eitthvað annað. Dómnefnd er skipuð einvalaliði, Nönnu Rögnvaldsdóttur, Hildi Hákonardóttur og Sólveig Baldursdóttir. Skemmtileg verðlaun fyrir besta Viðeyjarhnossgætið.

Viðeyjarstofa verður opin fyrir kvöldverðargesti. Best er að panta borð í síma 8241071.
Klukkan 20:00 verður kveiktur varðeldur í fjörunni austast í Viðey og svo verður slegið upp balli í skólanum í Viðey þar sem þeir Magni og Sævar úr Á móti sól munu skemmta dansfimum fram eftir kvöldi.

Dagskrá á Töðugjöldum:

  • 14:00 – 17:30 Grænmetismarkaðurinn opnar. Á boðstólum ný uppteknar rófur, kartöflur, kál, kúmen og annað góðgæti. Fyrstu kemur, fyrstur fær.
  • 14:00 Bænastund í Viðeyjarkirkju. Sr. Hjálmar Jónsson Dómkirkjuprestur sér um athöfnina.
  • 14:30 – 15:30 Skátafélagið Landnemar stjórnar víðavangsleikjum á leiksvæðinu fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þessir gömlu góðu leikir hafa algjörlega slegið í gegn hjá yngstu gestum Viðeyjar.
  • 16:00 Dómnefnd hefur störf og metur þær veigar sem taka þátt í keppninni Viðeyjarhnossgætið.
  • 17:00 Dómnefnd kynnir úrslit og verðlaunar siguvegarann.
  • 18:00 – 20:00 Kvöldverður í Viðeyjarstofu
  • 20:00 Kveiktur varðeldur í fjörunni í þorpinu
  • 21:00 – 23:00 Dansleikur í skólanum.

Gjald í ferjuna er kr. 1000.- fyrir fullorðna, kr. 500 fyrir börn 6-18 ára í fylgd fullorðinna og frítt fyrir börn yngri en 6 ára.

Birt:
28. ágúst 2009
Uppruni:
Viðeyjarsafn
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Töðugjöld í Viðey“, Náttúran.is: 28. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/28/toougjold-i-vioey/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: