Hæsta gjald fyrir bílastæði í Reykjavík er 150 krónur á klukkustund en í Kaupmannahöfn eru teknar 426 krónur fyrir sambærilegt stæði. „Gjaldskrá þarf að hækka í Reykjavík og ökumenn þurfa að huga betur að umgengni sinni gagnvart gangandi og hjólandi vegfarendum,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar.

Gjaldskrá vegna bílastæða í Reykjavík er ekki sambærileg við þær sem gilda í öðrum höfuðborgum á Norðurlöndum né heldur í London. Kolbrún hefur tekið saman tölur um þetta sem voru kynntar í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur í dag. Hún nefnir sem dæmi að lagt er 1500 kr. gjald á bifreið ef gjaldmælir er fallinn, gjald sem lækkar í 950 kr. ef það er greitt innan þriggja daga. Danskir ökumenn í Kaupmannahöfn greiða hins vegar 8.364 kr. fyrir sama athæfi. Leggi ökumaður á gangstétt eða í stæði fyrir fatlaða er lagt á þá 2.500 kr. stöðubrotagjald í Reykjavík sem lækkar í 1.950 kr. ef greitt innan þriggja daga.

„Gjaldskrá Bílastæðasjóðs Reykjavíkur er langt á eftir miðað við það sem gerist í nágrenni við okkur,“ segir Kolbrún og að gjaldtaka fyrir stöðubrot sé aðeins brot af því sem gerist annars staðar. Verð fyrir bílastæði í bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs er 80 krónur fyrir fyrsta klukkutímann og 50 krónur eftir það. Hálfur dagur kostar því 230 krónur. Hálfur dagur í Osló í Noregi kostar 2.520 krónur.

Umgengni á bifreiðum er umhverfismál í Reykjavík sem þarf að vera á dagskrá. Kolbrún vill einnig vinna að því að bæta viðhorf borgarbúa til Bílastæðasjóðs og ekki síst stöðuvarða sem eru eingöngu að sinna vinnu sinni.  Leiðarljós sjóðsins er að sýna lipurð í samskiptum og er jafnræðisreglan í hávegum höfð. Bílastæðastjóður rekur sjö bílahús í Reykjavík það nýjasta við Laugaveg 86-94. Fjöldi stæða í bílahúsum 1.280. Fjöldi stæða við gjaldmæla um það bil 2.500.

Sjá kynningu Bílastæðasjóðs í umhverfis- og samgönguráði

Birt:
8. apríl 2008
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Taka þarf á bílastæðamálum í Reykjavík“, Náttúran.is: 8. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/08/taka-tharf-bilastaeoamalum-i-reykjavik/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: